Efnt til vatnsslags í tilefni af sumardeginum fyrsta Jóhann Óli Eiðsson skrifar 20. apríl 2015 10:25 Þátttakendur geta gert ráð fyrir því að blotna. mynd/66°n
Á fimmtudaginn mætir hið langþráða sumar til landsins, í það minnsta að nafninu til, en þá er sumardagurinn fyrsti. Í tilefni af því verður efnt til vatnsslags á Lækjartorgi en viðburðurinn hefur hlotið nafnið H2015. Það er 66°Norður sem stendur fyrir viðburðinum en alls fara fram fjórir slagir sem hver um sig er fimmtán mínútna langur. Í hverjum slag mætast tvö lið en tíu manns verða í hvoru liði fyrir sig. Þátttakendur fá vatnsbyssur, vatnsfötur og vatnsblöðrur til að bleyta andstæðinga sína auk þess að þeir fá lánuð regnföt. Reglurnar eru einfaldar, liðið sem er á undan að klára vatnsbirgðir sínar sigrar. Aldurstakmark er 16 ár. „Við eigum eflaust öll góðar minningar tengdar góðviðrisdögum þegar maður lét renna í vatnsblöðru eða vatnsbyssu og fór út í sakleysislegt vatnsstríð með vinum sínum. Mig hefur lengi dreymt um að taka þetta á næsta stig og hóa tíu tuttugu manns saman en það varð aldrei af því. Í einhverjum skilningi er ég því loksins að láta æskudrauminn rætast," segir Fannar Páll Aðalsteinsson, markaðsstjóri hjá 66°Norður. „Ef vel gengur þá vonumst við til að gera þetta árlega héðan í frá. H2016, H2017 og H2018 eru klárlega á langtímaplaninu,“ bætir hann við og hlær. Leikarinn Arnmundur Ernst Backmann verður kynnir og vonast eftir góðu veðri. „Auðvitað vonum við að það verði glampandi sól. En þótt það sé búið að vera kalt í veðri þá hef ég engar áhyggjur. Það mun enginn blotna né krókna því það fá allir þátttakendur lánuð regnföt. Að því leytinu til er þetta mjög fullorðinslegur vatnsslagur. Fólk getur misst sig algjörlega og farið svo ægilega virðulegt í vinnuna eða skrúðgöngu beint á eftir.“ Skráning í slaginn fer fram á Facebook síðu 66°Norður og hefst í dag kl. 12:00. Hver og einn getur skráð mest fimm einstaklinga. Gamla góða reglan fyrstir koma, fyrstir fá verður í hávegum höfð.
Mest lesið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS Lífið Mikil stemning á lokahófi RIFF Lífið Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Lífið Hlátrarsköll á svartri kómedíu Lífið „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ Lífið Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Lífið Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Lífið Fleiri fréttir GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Sjá meira