Lífið

Ungum Akureyringi boðið að leika í klámmynd

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
María og Svanhildur vinkona hennar voru við Den Danske Kro þegar maðurinn kom upp að þeim.
María og Svanhildur vinkona hennar voru við Den Danske Kro þegar maðurinn kom upp að þeim. Vísir/Hari/María
María Kristjánsdóttir fékk óvanalegt boð um helgina þar sem hún gekk heim af djamminu í miðbæ Reykjavíkur ásamt Svanhildi Skúladóttur, vinkonu sinni. En upp að þeim hljóp ungur strákur sem vill endilega ná af þeim tali. Þær spjalla aðeins við manninn.

„Hann segist vera rússneskur en búi í Kanada og eitthvað svoleiðis. Svo fer hann að tala um að við séum rosalega myndarlegar,“ útskýrði María. „Hann spyr fyrst hvort við þekkjum internetið.“ María sagðist að sjálfsögðu hafa svarað játandi. Hún kemur frá Akureyri.

Maðurinn athugaði síðan hvort þær þekki vefsíðu sem kallast Bang Brothers en þær neituðu því. „Ég spyr bara á móti hvort hann þekki bonus.is, það sé mjög vinsæl vefsíða á Íslandi,“ segir María hlæjandi. Hann spurði þvínæst stúlkurnar hvort þær gætu hugsað sér að leika í kvikmynd á móti sér. Þær urðu ansi hissa og hann útskýrði þá fyrir þeim að hann framleiði klám. Maríu og Svanhildi var því boðið að leika í klámmynd þar sem þær gengu í hægðum sínum heim úr miðbænum. María sagðist hafa gefið manninum afdráttarlaust nei.

Forviða á neitun stúlknanna

„Þá sagði hann bara: „Ha? Í alvöru. Eruði alveg vissar?“ Þegar þær neituðu enn sagðist hann geta borgað þeim 2000 pund fyrir verkið sem eru rúmlega 400 þúsund krónur íslenskar. „Hann var alveg rosalega hissa á þessu. Voðalega hissa á að við skyldum neita þessu kostaboði.“

María sagðist ekki hafa fengið viðlíka boð áður en að hún gæti vel trúað því að þetta væri hvorki í fyrsta né síðasta skiptið sem þessi maður býður upp á slíkt. „Hann stökk alveg upp að okkur,“ útskýrir hún og gefur til kynna að hann hafi hvergi verið banginn.

Þær skildu manninn eftir fyrir utan Danska barinn og horfðu ekki um öxl.

„Við sögðum bara bless og hann stóð eftir svolítið hissa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×