Lífið

Gleymdi sér og las íþróttafréttir með blýant fyrir aftan eyrað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Benedikt stóð sig samt sem áður vel. Þetta er skemmtilegur vani.
Benedikt stóð sig samt sem áður vel. Þetta er skemmtilegur vani. Mynd/rúv
Benedikt Grétarsson, íþróttafréttamaður á RÚV, gleymdi að fjarlægja blýant fyrir eyrað áður en hann steig í beina útsendingu sjónvarpsins og las fréttir.

Hann fór því í gegnum heilan íþróttafréttapakka með blýantinn á sínum stað og leysti verkefnið einstaklega vel.

Umræða skapaðist um atvikið á twitter og sagði Benedikt þar að hann hefði verið með allt „lóðrétt í dag.“

Hér má sjá íþróttafréttir kvöldsins á RÚV og blýantinn fræga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×