Auðjöfur bauð þúsundum starfsmanna í lúxusferð til Frakklands Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. maí 2015 10:14 Hér sést Li í skrúðgöngu sem farin var í ferðinni. Vísir/AFP
Kínverski milljarðamæringurinn Li Jinyan, forseti Tiens Group, bauð rúmlega helmingi starfsmanna sinna í fjögurra daga leyfi til Parísar og Suður-Frakklands, nánar tiltekið frönsku rivíerunnar. Kostnaðurinn við ferðina hleypur á tæpum fimm milljörðum króna. Tilefnið er að 20 ár eru frá því að viðskiptasamband hófst á milli Tiens Group og fyrirtækja á frönsku rivíerunni en félagið var stofnað árið 1995. Jinyan, sem er samkvæmt Forbes 24. ríkasti maður heims, bókaði um 140 hótel í París fyrir þá 6.400 starfsmenn sem boðið var í ferðina. Starfsmennirnir áttu svo kost á að fara í ferðir á áhugaverða staði í París, svo sem Louvre-safnið og Eiffel-turninn. Auðjöfurinn bókaði svo um 7.600 lestarsæti til frönsku rivíerunnar en bæta þurfti við lestum og starfsmönnum á þeirri leið, að því er International Business Times greinir frá. Hápunktur ferðarinnar var svo þegar að starfsemnnirnir stöfuðu orðin „Tiens dream is Nice in the Cote d'Azur“ með því að raða sér upp.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Fleiri fréttir Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Sjá meira