Evrópskir blaðamenn á Eurovision-keppninni hafa lagt inn spá sína um síðari undanúrslit keppninnar sem fram fara í kvöld. Hefð er fyrir því að blaðamennirnir spái fyrir um brautargengi laganna, sem þó reynist ekki alltaf sannspá.
Líkt og veðbankar spá þeir Svíþjóð og Noregi efstu sætunum tveimur. Tíu stig skilja af Aserbaijan og Ísrael, sem skipa þriðja og fjórða sætið. Töluverður stigamunur er á fimmta og sjötta sæti, Slóveníu og Lettlandi, eða 124. Loks kemur Svartfjallaland með 427 stig og Litháen með 415. Ísland skipar níunda sæti listans með 413 stig og Tékkland tíunda og síðasta sætið með 378 stig.
Sjá einnig: Lögin í kvöld kynnt til leiks
Sautján lönd etja kappi og komast tíu þeirra áfram í kvöld. Lögin sjö sem blaðamennirnir telja að verði út undan eru Pólland, Kýpur, Írland, Malta, Sviss, San Marino og Portúgal.
Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.
Blaðamannaspáin: Ísland upp úr undanúrslitunum

Tengdar fréttir

Fullkominn Eurovision-réttur að hætti Maríu Ólafs
Eva Laufey heimsótti Maríu Ólafsdóttur á dögunum og fékk uppskrift að ljúffengu ostasalati sem tilvalið er að bera fram um helgina.

Nærmynd af Maríu: Var allt æfingatímabil Söngvaseiðs í gifsi á hækjum
"Hún er það góð að það er bókstaflega ekkert sem hún getur ekki sungið“

Slógu í gegn fyrir Ísland í Eurovision en hvar eru þau í dag?
Sumir fyrrverandi keppendur í Eurovision eru Íslendingum minnisstæðir þrátt fyrir að þeir þekki þá ekki endilega.

Seinni undanúrslit: Lögin kynnt til leiks
Ísland er tólfta á svið í seinni undanúrslitum Eurovision sem fram fara í kvöld.

„Gífurlegur spenningur hjá öllum“
María Ólafsdóttir stígur á svið fyrir Íslands hönd í Eurovision í Vín í kvöld. Stífar æfingar munu því standa yfir fram að stóru stundinni.