Innlent

Miðaldra karlmenn elska Eurovision

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Áhugi Íslendinga á Eurovision á sér varla hliðstæðu.
Áhugi Íslendinga á Eurovision á sér varla hliðstæðu. vísir/getty
Nú er ein stærsta sjónvarpsvika landsins gengin í garð. Enginn dagskrárliður er með meira áhorf í íslensku sjónvarpi en Eurovision-keppnin þrátt fyrir að Áramótaskaupið sé þar mjög nærri, ef miðað er við tölur frá síðasta ári. Meðaláhorf á Eurovision í fyrra var um 70 prósent en uppsafnað áhorf um 83 prósent.

H:N markaðssamskipti tók saman athyglisverðar upplýsingar um áhorfið á keppnina í fyrra. Þar kemur fram að 73 prósent ungra kvenna á aldrinum 12-30 ára fylgdust með þegar mest lét. Karlmenn á aldrinum 55-70 ára voru þó fjölmennari, því alls söfnuðust 83 prósent þeirra við skjáinn. Konur á aldrinum 30-45 ára náðu ekki að trompa karlahópinn en þær náðu mest samanlagt 77 prósenta áhorfi, sem þó engu að síður er mjög mikið áhorf.

vísir/h:n markaðssamskipti
Til samanburðar má rifja upp að áhorf á einn af þýðingarmeiri knattspyrnuleikjum íslenska karlalandsliðsins, leik Króatíu og Íslands haustið 2013, var 54 prósent. 

Ef vinsældir Eurovision á Íslandi eru settar í samhengi má nefna að 114 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á úrslitaleik Ofurskálarinnar (e.Superbowl) í ár. Það þýðir að meðaláhorf var um 35 prósent. Ef sami áhugi væri fyrir Ofurskálinni í Bandaríkjunum og fyrir Eurovision á Íslandi hefðu tæplega 230 milljónir Bandaríkjamanna setið límdar við skjáinn. 

Áhorfstölurnar eru unnar upp úr fjölmiðlamælingum Gallup á Íslandi og birtar með góðfúslegu leyfi þeirra.



Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.




Tengdar fréttir

„Líf mitt er á krossgötum í augnablikinu“

„Ég fór úr því að lifa mjög miklu einkalífi yfir í að allt í einu vita allir allt um mann. Svo ég þarf að hafa fyrir því að halda persónulegum hlutum fyrir mig,“ segir María Ólafsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×