Lífið

Mary Ellen Trainor látin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mary Ellen Trainor.
Mary Ellen Trainor. vísir/getty
Leikkonan Mary Ellen Trainor er látin, aðeins 62 ára að aldri. Hún féll frá á heimili sínu í Kaliforníu í lok síðasta mánaðar.

Hún er sennilega mest þekkt fyrir hlutverk sitt sem sálfræðingurinn Dr. Stephanie Woods í öllum fjórum Lethal Weapon myndunum.

Hún lék einnig stórt hlutverk í myndinni Th Goonies. Hún var nokkuð fyrirferðamikil á áttunda og níunda áratuginum en þá kom hún fram í Scrooged, Ghostbusters II, Romancing the Stone, Die Hard og Forrest Gump.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×