Lífið

Maggi Schev mætti á Tom Jones með móður sinni

Bjarki Ármannsson skrifar
Goðsögnin Tom Jones steig á svið í Laugardalshöll í kvöld, degi eftir 75 ára afmæli kappans. Jones er einn ástsælasti söngvari heimsins og greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 að nærri uppselt væri á tónleikana.

Margt var um manninn og náði Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Vísis, meðfylgjandi myndum úr höllinni. Meðal annarra mátti þar sjá sjálfan íþróttaálfinn Magnús Scheving ásamt Þórveigu Hjartardóttur, móður hans.

Maggi Schev lét sig ekki vanta.Vísir/Ernir

Tengdar fréttir

Tom Jones fagnar afmælinu á Íslandi

Einn ástsælasti söngvari heims, Tom Jones, er á leiðinni til landsins. Hann segist ekki fá leið á gömlu lögunum sínum en er hrifinn af Ed Sheeran og James Bay.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×