Lífið

Lögreglan leitar að syni Tom Hanks: Rústaði hótelherbergi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Feðgarnir á góðri stund á kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Feðgarnir á góðri stund á kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Lögreglan í Bretlandi leitar nú að Chet Hanks, syni Tom Hanks, en hann rústaði hótelherbergi sínu í Gatwick. Tjónið mun vera upp á 1200 pund eða um 250 þúsund íslenskar krónur.

Chet hafði gist á Arora International-hótelinu en starfsfólk hótelsins kom að herberginu í rústi. Chet hafði rifið sjónvarpið af veggnum og glerbrot út um allt.

Þessi 24 ára maður hefur átt við eiturlyfjavandamál að stríða síðan hann var 16 ára. Tom Hanks á drenginn með leikkonunni Rita Wilson en þau eru gift í dag. 

Hér má sjá hvernig hótelherbergið leit út.myndir/sunday mirror





Fleiri fréttir

Sjá meira


×