Lífið

Kate Moss vísað úr flugvél

Kate Moss.
Kate Moss. Vísir/EPA
Breska ofurfyrirsætan Kate Moss var í gær leidd út úr flugvél Easy Jet á Luton flugvelli í fylgd lögreglu fyrir dólgslæti um borð í vélinni. Moss var að koma frá Tyrklandi þegar hún missti stjórn á sér og beið lögregla hennar við lendingu í Luton.

Engin kæra var þó lögð fram í málinu og var hún því ekki handtekin heldur aðeins leidd út úr vélinni, að því er Sky fréttastofan greinir frá. Moss, sem er fjörutíu og eins árs, hefur verið ein frægasta fyrirsæta heims um árabil, en hún var uppgötvuð aðeins fjórtán ára gömul og var skömmu síðar orðin ein af skærustu stjörnum tískuiðnaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×