Lífið

Síðasti dagur til að sækja hlaupagögn í Hörpu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hlaupið verður á morgun.
Hlaupið verður á morgun.
Í dag er síðasti séns fyrir þátttakendur í The Color Run by Alvogen til að sækja hlaupagögn sín í Hörpu.

Verslun The Color Run hefur verið opin í Hörpu frá síðustu helgi en enn eiga 3.000 hlauparar eftir að sækja gögnin sín og því má búast við að það verði talsverð örtröð í Hörpu í dag.

„Við vorum svo sannarlega að flestir og helst allir sæki hlaupagögnin í Hörpu í dag og kvöld vegna þess að við erum með frábæra aðstöðu þar til að afgreiða alla á góðum tíma en eins og gefur að skilja þá verða aðstæður aðeins erfiðari í Hljómskálagarðinum á morgun,” segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi.

Verslunin verður opin til klukkan 22 í kvöld á fyrstu hæð í Hörpu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×