Lífið

Lamaður fyrir neðan háls: Fékk loksins að fljúga í svifvæng

Stefán Árni Pálsson skrifar
Brandur Bjarnason fékk loksins að fljúga.
Brandur Bjarnason fékk loksins að fljúga. vísir
Brandur Bjarnason Karlsson, sem er lamaður, átti sér þann draum að fljúga í svifvæng og um síðustu helgi varð sá draumur að veruleika.

Hann setti sig í samband við svifvængjakennara, sem lét sérhanna grind svo verkefnið væri mögulegt og á föstudaginn síðastliðinn hófu þeir sér til flugs.

Fyrir tíu árum fór hann að missa mátt í útlimum og tæpum fjórum árum síðar var hann nánast alveg lamaður fyrir neðan háls. Hann lét það þó ekki stöðva sig og hefur Brandur nú í liðlega fjögur ár málað myndir með munninum – en tæknina lærði hann hjá Eddu Heiðrúnu Bachman.

Sjá einnig: Safnaði 400 þúsund krónum og náði markmiði sínu

Brandur fékk hugmyndina um að svífa um loftin blá þegar hann horfði á myndina The Intouchables en þar má sjá aðalpersónuna Philippe fljúga í svifvæng en hann er lamaður fyrir neðan háls, en það er Brandur líka.

Gísli Steinar Jóhannesson.vísir
„Ég var fullfrískur alveg þangað til að ég var svona 22 ára, þá byrjaði ég að finna fyrir einhverjum hömlun, byrjaði að draga fótinn þegar ég gekk. Það var lítið í byrjun en þetta jókst og jókst þegar leið á. Á fjórum árum var ég orðinn alveg lamaður,“ segir Brandur.

Þrátt fyrir ótal rannsóknir undanfarin áratug hefur læknum ekki tekist að finna út hvers vegna lömunina bar að garði.

„Það er ekki alveg vitað ennþá. Það eru kenningar um að þetta sé það sem er kallað Lyme disease. Í honum kemst baktería inn í æðakerfið og veldur óútreiknanlegum skaða.“

Brandur komst í samband við Gísla Steinar Jóhannesson, svigflugvængjaflugmann, og vildi fá að fljúga.  

„Ég sagði fyrst nei við hann, en síðan er bara ekkert hægt að segja nei við svona mann eins og hann,“ segir Gísli.

„Við þurftum því að finna leiðir til þess að komast af stað og hvernig við myndum lenda, svo þetta yrði allt öruggt. Við fengum hjálp frá alveg fullt af fólki, þetta er svona teymisvinna. Við komum fram í fjölmiðlum þar sem við vorum að safna pening til þess að geta smíðað vagninn og stoðtækjafyrirtækið Össur hafði samband og bauð fram hjálp sína.“



Lendingin gekk frábærlega.vísir
Eftir nær árs undirbúnings var loksins komið að stóru stundinni.

„Það var mikil spenna yfir daginn, við þurftum að koma öllum á staðinn og passa að allt gengi upp. Við vorum búnir að horfa í veðrið mjög lengi. Þarna voru ákjósanlegar aðstæður til að fljúga.“

Gísli var búinn að undirbúa sig vel og hafði flogið einn með vagninn, og síðan hafði smiðurinn sem útbjó vagninn einnig farið í prufuflug. Eftir það var komið að Brandi.

„Þetta var frábær tilfinning, það var alveg magnað að komast með hann loksins í loftið,“ segir Gísli.

„Við flugum um í einhverjar fjörutíu mínútur, þetta gat ekki verið betra. Ég vissi ekki neitt hvernig honum líkaði við þetta. Ég vissi alveg að hann var lukkulegur en ég sé ekki framan í hann þegar ég er að fljúga, fyrr en ég sé myndefnið eftir flugið.“

Hér að neðan má sjá innslag sem gert var um flugið í þætti Íslands í dag í vikunni.

Veðrið var fullkomið.vísir

Tengdar fréttir

Nánast ómögulegt að vera fatlaður á landsbyggðinni

Brandur Bjarnason Karlsson kom í dag heim úr fimm daga hringferð í kringum landið ásamt tveimur vinum sínum og aðstoðarmanni, en lamaður frá hálsi og niður. Tilgangur ferðarinnar var að vekja athygli á slæmu aðgengi fyrir fatlaða á landsbyggðinni en hugmyndin kviknaði eftir að vinur Baldurs komst að því að á hringveginum er þrjú hundruð sextíu og fimm kílómetra vegakafli þar sem engin aðstaða er fyrir fatlað fólk til að nota salerni.

Lög um einmanaleikann

Tónlistarmaðurinn Teitur er meðal þeirra sem koma fram á færeyskum degi á Nasa í kvöld. Teitur, sem hefur verið að gera það gott í Danmörku, hlakkar mikið til tónleikanna. Freyr Bjarnason spjallaði við þennan hæfileikaríka pilt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×