Lífið

Keypti hakk með pökkunardag á morgun: Segir kjöt morgundagsins bragðast vel

Atli Ísleifsson skrifar
Grísahakkið frá Stjörnugrís var keypt í Hagkaup í Garðabæ.
Grísahakkið frá Stjörnugrís var keypt í Hagkaup í Garðabæ. Vísir/Ingi Þór/Vilhelm
„Við erum bara að borða kjöt morgundagsins og það bragðast bara ljómandi vel,“ segir Ingi Þór Einarsson kennari sem keypti grísahakk frá Stjörnugrís fyrr í dag þar sem pökkunardagur er skráður 5. júní 2015 eða á morgun.

Ingi Þór segist hafa keypt hakkið í Hagkaup í Garðabæ og hafi notað það við gerð lasagne.

„Við erum að borða núna og það er bara Back to the Future stemmning hérna á heimilinu,“ sagði Ingi Þór þegar Vísir náði tali af honum fyrr í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×