Lífið

Jada Pinkett-Smith um hjónabandið: "Ég er ekki pössunarpían hans“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jada Pinkett-Smith og Will Smith.
Jada Pinkett-Smith og Will Smith.
„Þú verður að treysta makanum þínum, ég er ekki pössunarpían hans,“ segir leikkonan Jada Pinkett-Smith um hjónaband hennar og Will Smith í útvarpsþætti Howard Stern. Þar sagðist hún einnig hafa ráðlagt börnum sínum að gifta sig ekki en Smith-hjónin hafa verið gift í 17 ár.

„Hann er fullorðinn maður og ræður hvað hann gerir,“ sagði Jada og bætti við að hún hefði verið of ung þegar þau giftu sig, þá 25 ára.

„Will er mjög heilsteyptur maður og hann er eins frjáls og hann vill vera. Svo lengi sem hann getur horft á sjálfan sig í spegli og verður sáttur með sig, þá er ég ánægð.“

Hún ræddi opinskátt um einkalíf þeirra. „Ég elska að klæða mig upp á mismunandi hátt og setja mig í allskonar hlutverk, svo þú getur rétt ímyndað þér hvernig ég er þegar við erum bara tvö. Þó maðurinn þinn heillist af annarri konu, þá þýðir það ekki að hann muni gera eitthvað í því,“ segir Jada.

Sterkur orðrómur hefur verið vestanhafs þess efnis að Will Smith hafi ítrekað haldið framhjá eiginkonu sinni og að hjónabandið standi á brauðfótum. Hér að neðan má hlusta á brot úr viðtalinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×