Einbýlishús sem var í eigu forsætisráðherra og borgarstjóra til sölu á tæplega 140 milljónir Stefán Árni Pálsson skrifar 4. júní 2015 20:30 Húsið er við Dyngjuveg 6. vísir
Einstaklega vel staðsett og mikið endurnýjað 350 fermetra einbýlishús í Laugardalnum er til sölu á tæplega 140 milljónir. Húsið er á tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað í vinsælu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík.Geir Hallgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, borgarstjóri og formaður Sjálfstæðisflokksins, bjó lengst af í húsinu ásamt fjölskyldu sinni enda hentar húsið vel fyrir hvers kyns móttökur og veislur ásamt því að vera notalegt og vel skipulagt fjölskylduhús. Arkitekt hússins er Gunnlaugur Halldórsson. Geir lést árið 1990, þá aðeins 64 ára að aldri. Geir var forsætisráðherra á árunum 1974-78. Við húsið er rúmgóður bílskúr með rafmagni, vatni, hita og hurðaopnara, fylgir eigninni og er inngangur í hann jafnt að framan sem aftanverðu. Komið er inn í sjálft húsið á efri hæð í flísalagt anddyri með flísalagðri gestasnyrtingu strax á vinstri hönd. Úr anddyri er gengið inn í parketlagt hol sem tengir saman helstu rými efri hæðar. Á hægri hönd er gengið inn í stóra og bjarta stofu sem tengist borðstofu á skemmtilegan máta. Hátt er til lofts og parket á gólfi í báðum stofum. Eldhús er á vinstri hönd úr holi og er það með nýrri og vandaðri, sprautulakkaðri innréttingu, góðum tækjum og akrýlstein á borðum. Gott búr er inn af eldhúsi. Eldhús tengist vel sólstofu og borðstofu en útgengt er á stórar útsýnissvalir frá sólstofunni. Svalirnar snúa til suðurs og eru með góðu aðgengi niður í garðinn. Útfrá sólstofunni er líka innangengt í stórt bókaherbergi/vinnuherbergi með vönduðum, upprunalegum og fallega uppgerðum innréttingum, ásamt útgengi út á svalir. Frá efri hæð er góður og nýlega teppalagður stigi niður á neðri hæð. Þar eru eftirfarandi rými: stórt hjónaherbergi með vönduðum skápum, og auk þess 3-4 svefnherbergi, þ.e. tvö hafa verið sameinuð í eitt stórt, en auðvelt væri að breyta því aftur. Öll herbergin eru með góðu eikarparketi á gólfum. Stórt og endurnýjað baðherbergi með fallegum flísum, upphengdu klósetti, tvennum gluggum, baðkari og sturtu, og auk þess annað minna baðherbergi, flíslagt í hólf og gólf með sturtu, upphengdu klósetti og glugga með opnanlegu fagi. Mjög rúmgott þvottahús með góðu vinnu- og skápaplássi, tvennum gluggum og útgengi í einstaklega fallegan garð í góðri rækt og með rúmgóðri útigeymslu. Innaf þvottahúsi er einnig fín geymsla sem og innaf gangi en þar eru einnig góðir skápar.
Mest lesið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Lífið „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Menning Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Lífið Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Lífið Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Lífið Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Lífið Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Lífið Fleiri fréttir Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Vann til verðlauna fyrir götubitann Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Eins og þruma úr heiðskíru lofti Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu Sjá meira