Lífið

Kynleiðréttingarferli Caitlyn Jenner verður að raunveruleikaþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Caitlyn Jenner.
Caitlyn Jenner. vísir
Caitlyn Jenner hefur átt alla fjölmiðlaumfjöllun vestanhafs undanfarna daga og þó víðar væri leitað.

Bruce Jenner, fyrrverandi stjúpfaðir, Kardashian systranna hefur verið fastur í röngum líkama alla ævi og gengur nú undir kynleiðréttingarferli.

Sjá einnig: Caitlyn Jenner sló heimsmet í gær

Jenner prýðir forsíðu júlí blaðs Vanity Fair. Caitlyn, sem áður hét Bruce Jenner, sat fyrir hjá ljósmyndaranum Annie Leibovitz.



Sjá einnig: Kallaðu mig Caitlyn Jenner

Nú hefur sjónvarpsstöðin E! gefið það út að nýr raunveruleikaþáttur er væntanlegur, þáttur sem mun fjalla um Caitlyn Jenner.

Caitlyn Jenner þekki vel lífið í raunveruleikaþáttum og kom mikið við sögu í þáttunum Keeping up with the Kardashian´s sem eru enn í sýningum á stöðinni.

Nýja þáttaröðin verður um allt kynleiðréttingarferlið og hefur þátturinn fengið nafnið I Am Cait en alls verða framleiddir átta þættir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×