Lífið

Sló heimsmet í planka: Fór yfir fimm tíma múrinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
George Hood er magnaður maður.
George Hood er magnaður maður. vísir
Heimsmetið í planka er fallið. Hinn 57 ára George Hood gerði sér lítið fyrir og var í fimm klukkustundir og fimmtán mínútur í planka.

Þessi Bandaríkjamaður bætti fyrra heimsmet um  fjórar klukkustundir og 23 mínútur. Hood gerði þetta til að safna fé fyrir Semper-Fi sjóðinn en hann safnar peningum fyrir særða hermenn í Bandaríkjunum.

Hér að neðan má sjá myndband af afreki Hood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×