Lífið

Lebron James sýnir veröldinni sitt heilagasta

Stefán Árni Pálsson skrifar
James hefur verið magnaður í úrslitaeinvíginu.
James hefur verið magnaður í úrslitaeinvíginu. vísir/getty
Lebron James er besti körfuboltamaður á jörðinni. Hann leikur fyrir Cleveland Cavaliers sem er í miðju úrslitaeinvígi við Golden State Warriors.

Liðin mættust í fjórða skipti í nótt og fór svo að Golden State vann 103-82. Það sem vakti gríðarlega mikla athygli á samskiptamiðlunum í nótt var þegar James varð fyrir því óláni að bera sig óvart fyrir framan allan heiminn, og það í beinni útsendingu. 

Þessi magnaði körfuboltamaður var að girða sig þegar hann tók stuttbuxurnar aðeins og langt niður. Myndband af atvikinu hefur gengið eins og eldur um sinu á veraldarvefnum síðustu klukkustundir. 

Kallinn verður að passa sig.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×