Lífið

Sjáðu myndbandið við Þjóðhátíðarlagið 2015

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Um er að ræða svokallað textamyndband, sem ætti að auðvelda landsmönnum að læra línurnar.
Um er að ræða svokallað textamyndband, sem ætti að auðvelda landsmönnum að læra línurnar.
Myndbandið við Þjóðhátíðarlagið, Haltu fast í höndina á mér, var frumsýnt í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld en lagið sjálft var frumflutt á FM957 í dag.

Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fékk þann eftirsótta heiður að semja Þjóðhátíðarlagið í ár, en hátíðin fer fram í Herjólfsdalnum um Verslunarmannahelgina, 31. júlí til 2. ágúst. Í fyrra átti Jón Jónsson Þjóðhátíðarlagið Ljúft að vera til, sem varð eitt vinsælasta lag síðasta árs.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×