Lífið

Smellti í nýtt stuðningsmannalag fyrir strákana okkar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Samúel er þekktur tónlistarmaður hér á landi
Samúel er þekktur tónlistarmaður hér á landi vísir/valli
Tónlistarmaðurinn Samúel Jón Samúelsson greinir frá því á Facebook að hann hafi samkvæmt hefðinni smellt í eitt stykki nýtt stuðningsmannalag fyrir íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu.

Liðið mætir Tékkum í undankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvelli í kvöld og höfum við sjaldan átt jafn mikla möguleika á því að komast á lokamót.

„Þar sem við stefnum alla leið til Frakklands næsta sumar er lagið í frönsk-íslenskum harmonikkuvals stíl. Nú er bara að ímynda sér að við séum mætt til Parísar að syngja og styðja strákana,“ segir Samúel.

Hægt er að hlaða laginu niður og spila hvar sem er hvenær sem er. Eins fylgja nótur og gítarhljómar með. Leikurinn hefst klukkan 18:45 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×