Erlent

Maður fannst látinn í sundlaug á heimili Demi Moore

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Leikkonan Demi Moore.
Leikkonan Demi Moore. vísir/epa
Maður fannst látinn á sunnudagsmorgun í sundlaug á heimili leikkonunnar Demi Moore í Beverly Hills í Los Angeles.

Lögreglan var kölluð út um klukkan hálfsex að staðartíma og var þá tilkynnt um að 21 árs gamall karlmaður væri látinn í lauginni.

„Demi Moore var ekki heima þegar þetta gerðist og enginn af hennar nánustu fjölskyldu,“ segir lögreglumaðurinn Matthew ones í samtali við CNN.

Fimm voru yfirheyrðir á heimili Moore vegna dauða mannsins.

„Það var partý í húsinu en við vitum ekki hver hélt það partý,“ segir Jones.

Lögreglan gefur að svo stöddu ekki upp nafn mannsins en talið er að um slys hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×