Erlent

Hellirigningar valda miklum flóðum á Indlandi

Heimir Már Pétursson skrifar
Gífurlegar rigningar hafa valdið flóðum í bæjum og borgum víðs vegar um Madhya Pradesh hérað á Indlandi undanfarna daga.

Í borginni Ujjain flæddi vatn inn í fjölda íbúðarhúsa og fyrirtækja og færði líf íbúanna algerlega úr skorðum. Margir voru króaðir af í húsum sínum og vegir, brýr og járnbrautarteinar hafa skemmst ásamt rafmagnslínum.

Indverjar eru mjög háðir monsún rigningunum þar sem þær eru undirstaða tveggja þriðju matvælaframleiðslu þeirra en þær valda einnig oft miklu tjóni á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×