Erlent

Ásakanir ganga á víxl í Úkraínu

Atli Ísleifsson skrifar
Spenna hefur aukist í austurhluta Úkraínu.
Spenna hefur aukist í austurhluta Úkraínu. Vísir/AFP
Ásakanir ganga nú á víxl milli talsmanna úkraínska stjórnarhersins og aðskilnaðarsinna á bandi Rússlandsstjórnar um hverjir beri ábyrgð á skothríð í miðborg Donetsk sem er á valdi aðskilnaðarsinna.

Í frétt BBC segir að aðskilnaðarsinnar segir að óbreyttur borgari hafi látist í árásum næturinnar. Talsmaður Úkraínustjórnar segir aðskilnaðarsinna sjálfa hafa borið ábyrgð á árásinni.

Árásirnar voru þær fyrstu í miðborg Donetsk frá því að samið var um vopnahlé í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×