Erlent

45 óbreyttir borgarar létust í sprengjuárásum í Jemen

Atli Ísleifsson skrifar
Hútar hafa neyðst til að hörfa frá Aden síðustu daga.
Hútar hafa neyðst til að hörfa frá Aden síðustu daga. Vísir/AFP
Að minnsta kosti 45 óbreyttir borgarar létust og rúmlega 120 særðust í sprengjuárás norður af jemensku hafnarborginni Aden fyrr í dag.

Fréttaveitan AFP greinir frá þessu.

Að sögn eru það uppreisnarmenn Húta sem bera ábyrgð á árásinni, en Hútar hafa neyðst til að hörfa frá Aden síðustu daga eftir að hafa náð tökum á stórum landsvæðum og höfuðborginni Sana síðustu mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×