Gleymdi hundunum í læstum bíl í steikjandi hita við Fífuna Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. júlí 2015 16:15 Hundarnir voru fullvaxta og af gerðinni Golden Retriever Vísir
Lögreglan í Kópavogi var kölluð til á fjórða tímanum í dag eftir að vegfarendur tilkynntu um tvo Golden Retriever hunda sem læstir voru inn í bifreið við íþróttamiðstöðina Fífuna. Engar rifur voru á gluggum bílsins og í glampandi sólskininu myndaðist gríðarlegur hiti í bílnum en lofthiti var þá um 18 gráður. Að sögn sjónarvotta voru hundarnir aðframkomnir af hita og másuðu mikið. Vegfarandi sem Vísir náði tali af var í rúmlega klukkustund að reyna að hafa upp á eigendum bílsins meðan hundarnir sátu þar enn læstir inn. Því hafi lögreglunni verið gert viðvart. Eigandi hundanna hafði verið að fylgjast með Símamótinu í knattspyrnu sem fram fer við Fífuna þessa dagana.Ráða illa við mikinn hitaDýraverndunarsamtök á Norðurlöndum vara gæludýraeigendur reglulega við því að skilja dýr sín eftir í bílnum nú yfir sumartímann þar sem þeir geti drepist úr hita. Dönsku dýraverndarsamtökin Dyrefondet hafa sagt að þetta sé vaxandi vandamál þar í landi og að árlega berist fregnir af hundum sem látið lífið eftir að hafa gleymst í bílum. Yfir sumartímann, þegar heitast er og sólin skín, getur hitinn í bílnum hlaupið á tugum gráða og það þoli hundar ekki. Því segir talsmaðurinn samtakana það vera betra fyrir fólk að skilja hundinn eftir heima í stað þess að kvelja hann í bílnum.
Mest lesið Engin niðurstaða á fundi Sjálfstæðisflokksins Innlent Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni Innlent Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni Innlent Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Innlent „Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Innlent Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Innlent „Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Innlent Viðskiptalífið sérstaklega áhugasamt um að fylgja Höllu út Innlent Miður að misbrestur hafi orðið í þjónustu neyðarmóttökunnar Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni „Meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu“ Hver er framtíð ríkisstjórnarinnar? Allir tónlistarkennararnir til í verkfall Þórarinn víkur sem formaður Sameykis Þurfi ekki skarpskyggni til að sjá krísuástandið Sjálfstæðisflokkurinn tilbúinn í kosningar Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Engin niðurstaða á fundi Sjálfstæðisflokksins Dæmdur fyrir að nema eigið barn á brott Miður að misbrestur hafi orðið í þjónustu neyðarmóttökunnar Efla Hagstofuna í kjölfar talnaruglsins Grunar að veikindi flugáhafna tengist efni sem finnst í smurolíu Viðskiptalífið sérstaklega áhugasamt um að fylgja Höllu út „Grafalvarlegt mál“ ef af verkföllum verður „Þetta er allt komið í einhvern hrærigraut“ Ríkisstjórn í vanda stödd Þyrlan kölluð út vegna slyss en afturkölluð „Ég leyni því ekki að við erum í vanda stödd“ Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Sjö vilja verða varaseðlabankastjóri Þögull sem gröfin um aðgerðir í öðrum framhaldsskóla Bein útsending: Nýir tímar í landbúnaði Greip til hnífs því hún óttaðist að sonurinn kæmi að sér látinni „Mönnum finnst að lögin eigi ekki að gilda þegar réttlæti þeirra er annað“ Kæru Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Búrfellslundar vísað frá „Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Sjá meira