Erlent

Bush eldri braut bein í hálsi

Atli Ísleifsson skrifar
George H.W. Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, er 91 árs gamall.
George H.W. Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, er 91 árs gamall. Vísir/AFP
George H.W. Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur verið lagður inn á sjúkrahús eftir að hafa brotið bein í hálsi þegar hann féll á heimili sínu í Maine-ríki.

Talsmaður Bush sagði ástand hans stöðugt og að búist sé við að sjúkrahúsdvöl yrði stutt.

Í frétt BBC segir að hinn 91 árs gamli Bush sé með Parkinsonveiki og bundinn við hjólastól. Hann hélt upp á níræðisafmæli sitt með því að fara í fallhlífastökk.

Búist er við að Bush þurfi að notast við hálskraga næstu vikurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×