Erlent

Vilhjálmur prins mættur til vinnu

Atli Ísleifsson skrifar
Prinsinn á fyrsta starfsdegi sínum.
Prinsinn á fyrsta starfsdegi sínum. Vísir/AFP
Vilhjálmur Bretaprins mætti í fyrsta sinn til vinnu sem sjúkraþyrluflugmaður hjá East Anglian Air Ambulance (EAAA) í morgun.

Í tilkynningu frá Kensington-höll segir að Vilhjálmur verði hluti af teymi sem staðsett verður á flugvellinum í Cambridge.

Þyrluteymi prinsins mun þjónusta Bedfordskíri, Cambridgeskíri, Norfolk og Suffolk.

Vísir/AFP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×