Erlent

Árásarinnar á Nagasaki minnst

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þriðjungur Nagasagi varð að rústum í kjölfar sprengingarinnar.
Þriðjungur Nagasagi varð að rústum í kjölfar sprengingarinnar. vísir/ap
Í dag eru sjötíu ár liðin frá því að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á borgina Nagasaki í Japan. 70.000 manns, að minnsta kosti, létu lífið eftir sprenginguna. Atburðarins er minnst víða um heim í dag.

Í dag eru 75 ár liðin frá því að þessi mynd var tekin.vísir/ap
Síðan þá hafa kjarnorkuvopn ekki verið notuð í stríði en þremur dögum áður höfðu Bandaríkjamenn varpað áþekkri sprengju á borgina Hiroshima. Upphaflega átti að varpa sprengjunni á borgina Kokura en hætt var það á síðustu stundu sökum óhagstæðs skýjafars. Sprengjan féll þrátt fyrir að skýjafar hafi einnig verið óhagstætt í Nagasaki. Sprengjan lenti ekki þar sem hún átti að lenda en þrátt fyrir það féllu tugþúsundir. Alls létust um 240.000 manns í árásunum en þar af voru um 220.000 óbreyttir borgarar. 

Fulltrúar 75 landa komu saman í Nagasaki í dag til að minnast árásarinnar. Klukkan 11.02 að staðartíma var einnar mínútu þögn en þá voru akkúrat 75 ár frá því að sprengingin varð. 

Tomihisa Taue, borgarstjóri Nagasaki, flutti friðarávarp og mótmælti harðlega áætlunum forsætisráðherrans Shinzo Abe þess efnis að Japanir geti gripið til vopna á hafi úti komi til þess. Hið sama gerði hinn 86 ára gamli Sumiteru Taniguchi en hann upplifði sprenginguna á eigin skinni.

„Það var heiðskýr og sólríkur dagur og skyndilega sá ég blindandi ljós,“ segir eftirlifandinn Toru Mine sem en hann vinnur nú á safni um árásina. „Fyrst hélt ég að þetta hefði verið elding en svo áttaði ég mig á því að það væri fáránlegt að það kæmi elding úr heiðskíru lofti.“ 

Fáum dögum eftir árásina gáfust Japanir upp og síðari heimstyrjöldinni lauk. Enn þann dag í dag er deilt um þátt árásanna á Hiroshima og Nagasaki í uppgjöfinni en allir eru sammála um að forðast það að beita kjarnorkuvopnum í hernaði á nýjan leik.

„Ég þjáist enn þann dag í dag,“ segir Sumiteru Taniguchi sem lifði árásina af. Afleiðingar sprengjunnar sjást enn á líkama hans.vísir/ap

Tengdar fréttir

Sálum fleytt til betri heims

Í Japan fleyta menn ljóskerum á vatn til að senda sálir látinna til betra heims. 70 ár frá kjarnorkusprengingunni í Hiroshima minnst með kertafleytingum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×