"Skotárásin“ í Ósló: Vörðurinn skaut sjálfur og kom "sprengjunni“ fyrir Atli Ísleifsson skrifar 6. ágúst 2015 07:33 Grete Lien Metlid, talsmaður lögreglunnar, ræddi við fjölmiðla í morgun.
Talsmaður norsku lögreglunnar segir að öryggisvörðurinn sem „skotinn“ var á háskólasvæðinu í Ósló í fyrrinótt hafi verið ákærður fyrir að hafa gefið lögreglu falskar upplýsingar. Vörðurinn breytti í gærkvöldi útskýringum sínum á því hvað hafi átt sér stað og viðurkenndi að hafa sjálfur skotið úr byssu og komið hlut sem líktist sprengju fyrir á svæðinu. Mikill viðbúnaður var á háskólasvæðinu í gærmorgun og voru sprengjusérfræðingar kallaðir á vettvang. „Þetta þýðir að það var hann sem skaut,“ segir Grete Lien Metlid, talsmaður lögreglunnar, í samtali við norska fjölmiðla í morgun og bætir við að vopnið sé fundið og lögregla hafi lagt hald á það. Lögregla hefur óskað þess að ræða við alla þá sem voru á háskólasvæðinu Blindern aðfaranótt gærdagsins. Mikil leit stóð yfir að tveimur mönnum sem öryggisvörðurinn sagðist hafa elt og að annar þeirra hafi skotið vörðinn í bringuna. Bárust í gær fréttir af því að vörðurinn hafi sloppið með minniháttar sár þar sem hann hafi verið í skotheldu vesti. Lögregla gefur ekki upp skýringar á því hvers vegna vörðurinn hafi logið til um málið, en segir málið mjög alvarlegt þar sem það hafi vakið ótta meðal fólks.
Tengdar fréttir Viðbúnaður í Ósló: Sprengjusérfræðingar hafa lokið störfum Lögregla hafði girt af svæði á háskólasvæðinu en fyrr um nóttina hafði öryggisvörður verið skotinn. 5. ágúst 2015 10:08 Skotárás á háskólasvæði í Osló Lögreglan í Osló er með mikinn viðbúnað umhverfis Oslóarháskólann í Noregi eftir að hlutur, sem talinn er svipa til sprengju, fannst á svæðinu í nótt. 5. ágúst 2015 07:04 Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent „Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Erlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Ethel Kennedy er látin Erlent Fleiri fréttir Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Ethel Kennedy er látin Tíu létust þegar Milton fór yfir Flórída Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Sjá meira
Viðbúnaður í Ósló: Sprengjusérfræðingar hafa lokið störfum Lögregla hafði girt af svæði á háskólasvæðinu en fyrr um nóttina hafði öryggisvörður verið skotinn. 5. ágúst 2015 10:08
Skotárás á háskólasvæði í Osló Lögreglan í Osló er með mikinn viðbúnað umhverfis Oslóarháskólann í Noregi eftir að hlutur, sem talinn er svipa til sprengju, fannst á svæðinu í nótt. 5. ágúst 2015 07:04