Erlent

Árásarmaður skotinn til bana í kvikmyndahúsi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Tuttugu og níu ára karlmaður var skotinn til bana af lögreglu í gærkvöldi eftir að hafa ráðist að fólki í kvikmyndahúsi í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum. Maðurinn var vopnaður exi og piparúða, með bakpoka á brjóstkassanum og hlífðargrímu fyrir vitum sínum, að því er segir í erlendum fjölmiðlum.

Einn særðist lítillega í árásinni og þrír þurftu að leita aðhlynningar sökum piparúðans. Maðurinn átti nokkurn afbrotaferil að baki og hafði í fjórgang verið dæmdur til vistar á geðsjúkrahúsi.

Einungis eru tvær vikur síðan skotárás var gerð í kvikmyndahúsi í Lafayette í Louisiana, þar sem þrír biðu bana. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×