Ólögleg lyfjanotkun miklu útbreiddari en talið var Viktoría Hermannsdóttir skrifar 2. ágúst 2015 13:20
Gögn sem eru sögð sýna að ólögleg lyfjanotkun sé algeng meðal frjálsíþróttafólks var lekið til fjölmiðla. Niðurstöðurnar eru sagðar sláandi. Ólögleg lyfjanotkun er útbreidd meðal keppenda á stærstu frjálsíþróttamótum heims. Gögnum sem sögð eru vera frá Alþjóða frjálsíþróttasambandinu IAAF, og innihalda niðurstöður rannsókna á blóðsýnum úr 5000 frjálsíþróttamanneskjum, var lekið til fjölmiðla á dögunum. Samkvæmt þeim innihélt 1 af hverjum 7 blóðsýnum vafasöm efni. Í frétt Sunday Times af málinu kemur fram að fengnir hafi verið tveir af helstu sérfræðingum heims til þess að fara yfir gögnin og þykja niðurstöðurnar sláandi. Í gögnunum er að finna niðurstöður rannsókna á 12 þúsund blóðsýnum úr 5 þúsund keppendum í frjálsíþróttum sem þykja benda til að notkun blóðgjafar og EPO-lyfsins, sem eykur súrefnisupptöku blóðsins, fer vaxandi meðal frjálsíþróttafólks. Sýnin voru tekin á stórmótum á árunum 2001 til 2012. Samkvæmt Sunday Times þá telja sérfræðingarnir sig geta ráðið það af gögnunum að 146 verðlaun sem veitt voru í langhlaupum og göngugreinum á heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum á þessum árum, þá hafi fundist vafasöm efni í blóðsýnum. Um er að ræða 55 gullverðlaun sem veitt voru á tímabilinu í þessum greinum, og um þriðjungur allra verðlauna í greinunum. Enginn þessara verðlaunahafa hefur verið sviptur verðlaunum. Sýnin sem slík eru þó ekki haldbær sönnun á að lyfjamisnotkun eigi sér stað en samkvæmt sérfræðingunum þá þykja þau sýna að lyfjanotkun sé meiri en áður sé talið í frjálsíþróttum. Heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum fer fram í Peking í lok þessa mánaðar og gætu afhjúpanirnar varpað skugga á mótið en einnig verður kosið um nýjan forseta sambandsins.
Mest lesið Fólkið sem sé ekki á Kjarval velti þessu sannarlega fyrir sér Innlent Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Erlent Lögreglumaður dæmdur fyrir að beita kylfu við handtöku Innlent Ingólfur tapar meiðyrðamáli: „Þá í að halda áfram að nauðga og beita ungar konur ofbeldi?“ Innlent Eftirlitsfólk MAST geti ekki fylgst með hverri einustu blóðtöku Innlent Umfangsmikil uppbygging við andapollinn sé „stórlega ýkt“ Innlent Hellisheiði lokað til vesturs og fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng í alla nótt Innlent Fordæma „hverskyns ofbeldi“ og segjast hugsi yfir njósnum um bændur Innlent Máttu ekki vísa mæðgunum úr félaginu í fimmtán ár Innlent Bandaríkin muni semja Innlent Fleiri fréttir Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Sjá meira