Erlent

Sverð gegn sverði: Verslunareigandi tekst á við ræningja - Myndband

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Versunareigandinn dó ekki ráðalaus.
Versunareigandinn dó ekki ráðalaus.
Tvær ræningjar komust í hann krappan er þeir ætluðu sér að ræna verslun í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Þeir voru vopnaðir sverðum og sáu sér leik á borði. Verslunareigandinn var þó ekki á sama máli, greip töluvært stærra sverð en þau sem ræningjarnir voru með og hrakti þá einfaldlega á brott úr verslun sinni eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.

„Um leið og ég sá að þeir voru með sverð greip ég sverðið mitt til þess að hræða þá í burtu,“ sagði verslunareigandinn í viðtali við fréttamenn eftir atburðinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×