Erlent

Þetta verður um flugfarangurinn þegar búið er að innrita hann

Atli Ísleifsson skrifar
Ferðatöskur á færibandinu.
Ferðatöskur á færibandinu.
Forsvarsmenn Schiphol–flugvallar í Amsterdam hafa birt myndband sem sýnir hvað verður um farangur ferðalanga þegar búið er að innrita hann.

Myndavélum var komið fyrir á ferðatöskum þannig að sjá má hvernig töskurnar ferðast um völundarhús færibanda og er svo komið fyrir á kerruvagni sem verður síðar ekið út í vél.

Á heimasíðu flugvallarins má svo einnig sjá ferðalag farangursins þar sem boðið er upp á þann möguleika að snúa myndavélinni í allar áttir og þannig fá betri yfirsýn yfir ferðalagið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×