Erlent

Fimmtíu fórust í sprengjuárás

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Fimmtíu fórust og á níunda tug særðust er bílsprengja sprakk í norðausturhluta Bagdad í nótt.

Árásin var gerð á fjölfarinn markað um klukkan sex að morgni til, að staðartíma, í hverfi síta en spenna á milli síta og súnníta hefur farið vaxandi að undanförnu. Þó hefur enginn lýst ábyrgð á árásinni á hendur sér. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×