Erlent

Gasleiðsla sprakk í Mexíkó

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/epa
Að minnsta kosti fimm manns létust þegar gasleiðsla sprakk skammt frá borgarmörkum Monterrey í Mexíkó í nótt.

Yfirmaður öryggismála í borginni segir að illa brunnar líkamsleifar einstaklinganna hafi fundist á akri skammt frá en segir ekki ljóst hvað olli sprengingunni. Þó fundust tveir borar á vettvangi en grunur leikur á að fólk hafi reynt að koma á tengingu við gasleiðsluna með ólöglegum hætti en það er ekki óalgengt í Mexíkó. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×