Árásin í IKEA: Hefðum verið þarna hefði ég farið með Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. ágúst 2015 13:45 „
Hefði ég verið með í för hefðum við sennilega farið í þessa IKEA verslun,“ segir rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl en hann býr í fimm mínútna fjarlægð frá versluninni í Västerås þar sem tvær manneskjur voru stungnar til bana skömmu eftir klukkan eitt að staðartíma í dag. Eiríkur og eiginkona hans, Nadja Widell, vinna nú að flutningum til Ísafjarðar og höfðu Nadja og faðir hennar farið í leiðangur til að kaupa pappakassa, límband, plast og allt það sem þú þarft þegar kemur að flutningum. „Nadja er með mjög mikla fordóma gagnvart IKEA og vill helst ekki fara þangað. Úr því að þau fóru bara tvö þá suðaði hún það út að fara í aðra verslun. Ef ég hefði farið með þeim hefðum við verið þarna akkúrat á þeim tíma sem árásin var gerð,“ segir Eiríkur.Glæpir og ofbeldi undir friðsælu yfirborði Tveir létu lífið, karl og kona, í árásinni og var annar fluttur alvarlega særður á sjúkrahús þar sem hann er nú í aðgerð. Árásarmaðurinn var handtekinn og samkvæmt fyrstu fregnum virðist ekki hafa verið nein tenging á milli hans og fórnarlambanna. „Þetta er svo rosalega skrítið eitthvað. Fyrir örfáum dögum var ég þarna með tveggja ára dóttur minni og leyfði henni að leika sér aðeins meðan ég skoðaði rekkana. Það setur að manni smá hroll þegar maður hugsar út í þetta.“ Frá heimili sínu sér Eiríkur engan viðbúnað en þarf þó ekki að fara langt til að verða var við lögreglubíla sem lokað hafa götum. Västerås er 110.000 manna borg þar sem Eiríkur segir að við fyrstu sýn virðist mjög friðsæl. Maður verði lítið var við glæpi og vesen á yfirborðinu. „Maður þarf hins vegar ekki að lesa fréttir í marga daga til að sjá að það er hellingur af glæpum, ofbeldi og ógeði undir glansinu,“ bendir Eiríkur á og bætir við „að það sé ekkert svona á Ísafirði. Það verður gott að komast þangað.“
Tengdar fréttir Tveir látnir eftir hnífaárás í IKEA Tveir eru látnir og einn alvarlega særður eftir hnífaárás í verslun IKEA í Vesteras í Svíþjóð. 10. ágúst 2015 12:58 Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Sjá meira
Tveir látnir eftir hnífaárás í IKEA Tveir eru látnir og einn alvarlega særður eftir hnífaárás í verslun IKEA í Vesteras í Svíþjóð. 10. ágúst 2015 12:58