Alexis Tsipras segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 20. ágúst 2015 17:46 Alexis Tsipras forsætisráðherra Grikklands. Vísir/AFP
Alexis Tsipras hefur tilkynnt um afsögn sína sem forsætisráðherra Grikklands. Búist er við að boðað verði til þingkosninga í landinu 20. september næstkomandi. Tsipras sagði í ávarpi að hann myndi leita til grískra kjósenda til að fá úr því skorið hvort halda eigi áfram með áætlun stjórnarinnar. Þá sagði hann Grikki verða að ákveða hvort stjórn hans hafi komið fram fyrir hönd Grikkja af hugrekki í samskiptum sínum við lánardrottna.Í frétt Guardian segir að sjónvarpsávarp Tsipras hafi fljótlega breyst í kosningaræðu þar sem hann hrósaði stjórn sinni og sagðist stoltur af þeim tíma sem hann gegndi embætti forsætisráðherra. Sagði hann Evrópu ekki vera þá sömu og þegar Syriza tók við völdum í Alþenu í janúar. Tsipras hefur að undanförnu þurft að kljást við uppreisn innan eigin flokks, Syriza, en um þriðjungur þingflokksins sat hjá eða greiddi atkvæði gegn samkomulagi sem Grikklandsstjórn gerði við lánardrottna sína um skattahækkanir og niðurskurð í skiptum fyrir 86 milljarða evra lán. Fyrirhugaðar aðhaldsaðgerðir hafa vakið mikla reiði meðal fjölda liðsmanna Syriza, en flokkurinn komst til valda í ársbyrjun eftir að hafa lofað að koma í veg fyrir einkavæðingu og niðurskurð.
Mest lesið Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Innlent Færeyingar fagna tvennum göngum Erlent Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Innlent Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Innlent „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Innlent Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Innlent Fleiri fréttir Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Sjá meira