Formúla 1

Webber: Maldonado er ekki nógu góður fyrir F1

Mark Webber er ekki ánægður með þróun mála.
Mark Webber er ekki ánægður með þróun mála. Vísir/Getty
Mark Webber fyrrum ökumaður Red Bull liðsins í Formúlu 1 segir vissan hóp ökumanna sem nú aka í Formúlu 1 ekki nógu góða til að verðskulda sæti þar.

Webber sem vann níu keppnir á Formúlu 1 ferlinum og keppir nú í heimsmeistarakeppninni í þolakstri, segir áhrif ökumanna sem borga fyrir sæti sitt hafa lækkað gæði ökumanna á heildina litið.

„Við vitum að það eru gæði fremst á ráslínunni, en ég held samt að það gæti samt áhrifa borgandi ökumanna sem koma inn í íþróttina og ákveða hvaða lið þeir vilja aka fyrir og hversu lengi,“ sagði Webber í samtali við Sky Sports F1.

„Það hafa alltaf verið fjárhagslega styrktir ökumenn í F1, það má ekki misskilja mig, en árið 2002 þegar ég byrjaði, eða 2010, jafnvel um miðjan tíunda áratug tuttugustu aldar, held ég að það hafi veirð meiri geta til staðar. Ungir ökumenn fengu meiri tækifæri til að sanna sig af því þeir höfðu hreinlega meiri tækifæri til þess að sanna hæfileika sína og höfðu ekki ríkisstjórnir heimalandsins sem bakhjarl,“ sagði Webber.

Aðspurður hvort hann væri að tala um Pastor Maldonado sem er studdur af ríkisolíufélagi Venesúela, svaraði Webber: Já. meðal annarra.

Pastor Maldonado gleymdi að sækja Webber á Maldonado vagninum.Vísir/Getty
„Þeir þyrftu að koma fram við íþróttina af meiri ánægju, meiri fagmennsku og meiri áræðni í að halda sér í íþróttinni. Þeir gera lítið úr því að vera í henni með því að segjast bara gera betur í næstu keppni,“ bætti Webber við.

„Við notum Pastor sem dæmi - það eru nokkrir sem eiga ekki að vera þarna. Það verður að vera hungur í að sanna sig. Maður vill sjá bestu ökumennina sem eru metnaðarfullir, einbeittir og fagmennskan fram í fingur góma og virkilega ánægðir að vera í Formúlu 1,“ sagði Webber að lokum.

Maldonado hefur ekki átt gott tímabil hingað til. Hann hefur einungis náð í 12 stig og klárað fjórar keppnir af 12. Sæti hans hjá Lotus liðinu er í hættu nú þegar Renault gerir sig líklegt til að kaupa stóran hluta í liðinu. Maldonado er hins vegar hlaðinn öflugum styrktaraðilium sem geta kommið flestum liðum vel. Hann ætti því að geta komist í annað lið vilji hann það.


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Það helsta frá Monza

Lewis Hamilton kom fyrstur í mark og svo stóð hugsanlega til að dæma hann úr leik. Kimi Raikkonen átti frábæra tímatöku en hvað svo?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×