Ráðist í stækkun Búrfellsvirkjunar Svavar Hávarðsson skrifar 9. október 2015 07:00 Búrfellsvirkjun var fyrsta stórframkvæmd Landsvirkjunar og var fyrirtækið stofnað um þá framkvæmd fyrir 50 árum. Helstu umhverfisáhrif nýrrar virkjunar eru aðrennslisskurður, frárennslisskurður og inntaksmannvirki virkjunarinnar. Stöðvarhúsið verður staðsett neðanjarðar í Sámsstaðaklifi. mynd/landsvirkjun
Landsvirkjun hefur tekið ákvörðun um að ráðast í stækkun Búrfellsvirkjunar. Stækkunin nemur 100 megavöttum (MW) í uppsettu afli og er áætlað að framkvæmdir hefjist á vormánuðum. Stækkunin mun nýta vatn sem í dag rennur fram hjá núverandi stöð og er áætlaður kostnaður við framkvæmdir og kaup á vélum og öllum öðrum búnaði 13 til 15 milljarðar króna.Lengi á teikniborðinu Langt er síðan stækkun Búrfellsvirkjunar, sem nú verður ráðist í, var fyrst ámálguð. Í raun lá það alltaf fyrir að stækkun væri góður kostur, eða allt frá því að gamla virkjunin var fullbyggð árið 1972. Þá strax var ljóst að gamla virkjunin fullnýtir ekki nema um 86% af því vatni sem rennur fram hjá henni. Stækkuð Búrfellsvirkjun mun bæta nýtingu á því rennsli. Þeim áformum var hins vegar slegið á frest þegar ákvörðun var tekin um að auka afl núverandi Búrfellsstöðvar úr 210 MW í 280 MW með endurnýjun búnaðar á árunum 1997-1999. Þess utan er stækkun virkjunarinnar söguleg fyrir Landsvirkjun því fyrirtækið var stofnað um upphaflegu virkjunina árið 1965 samhliða því að álverið í Straumsvík var reist.Hörður ArnarsonSvara þarf eftirspurn Ástæðan fyrir því að ráðist er í þessa virkjun nú segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, að sé aukin eftirspurn frá smærri iðnfyrirtækjum, gagnaverum, ferðaþjónustunni og fleirum. Hörður segir jafnframt að það sem er óvenjulegt við þessa framkvæmd sé að umhverfisáhrifin eru óvenjulega lítil. „Það sem er í raun óhjákvæmilegt með okkar framkvæmdir er að umhverfissporið er stórt, sérstaklega í vatnsaflsvirkjunum. Stór lón valda þar mestum umhverfisáhrifum en hér er verið að nýta núverandi uppistöðulón og því til viðbótar var ákveðið að staðsetja stöðvarhúsið inni í fjallinu þannig að sjónræn áhrif eru í lágmarki,“ segir Hörður en mest áberandi mannvirkin verða aðrennslisskurður, frárennslisskurður og inntaksmannvirki virkjunarinnar. Þess má geta að sá möguleiki var skoðaður að hafa stöðvarhúsið ofanjarðar en kostnaður var áþekkur og umhverfissjónarmið látin ráða því hvaða leið var valin, en stöðvarhús neðanjarðar er talið öruggara í tilliti til náttúruvár – jarðskjálfta og eldsumbrota.BúrfellsvirkjunLandsvirkjun er að hans sögn að skoða fleiri sambærileg verkefni. Möguleikar til að nýta virkjunarsvæði fyrirtækisins betur eru fyrir hendi, og nefnir Hörður Blönduvirkjun í því sambandi. Þá eru möguleikar fyrir hendi á að stækka Búrfellsvirkjun enn, eða um 40 MW með því að bæta við annarri aflvél síðar í stöðvarhúsinu í Sámsstaðaklifi.Léttir álaginu af þeirri gömlu Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, segir að framhjárennslið sé aðallega yfir sumarið og muni stækkunin því aðeins framleiða orku hluta ársins. Afl virkjunarinnar muni hins vegar nýtast allt árið um kring til að auka rekstraröryggi og sveigjanleika raforkukerfisins. Annað sem græðist er að létta álaginu af núverandi Búrfellsstöð sem hefur verið keyrð á yfirálagi langtímum saman, og sinna viðhaldi sem er löngu tímabært.Hvað næst? Eins og kunnugt er eru framkvæmdir hafnar við jarðhitavirkjun á Þeistareykjum á vegum Landsvirkjunar. Fyrri áfanga, sem er 45 MW, á að vera lokið í október 2017 en síðari áfanga í apríl 2018, eða á mjög svipuðum tíma og stækkun Búrfellsvirkjunar kemst í gagnið. Tvö verkefni verða því í gangi á sama tíma, en frá sjónarhóli Landsvirkjunar, staðfestir Hörður, eru verkefnin það lítil að þau hafa engin áhrif á ákvarðanatöku fyrirtækisins um hugsanlegar framkvæmdir við Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár á næstu árum, eða verði niðurstaða Skipulagsstofnunar sú að ekki sé þörf á nýju umhverfismati en ákvörðunar um það er að vænta von bráðar.150 manns á vinnustað á framkvæmdatímaÁætlað er að hefja framkvæmdir á fyrirhuguðu virkjunarsvæði vorið 2016 og að þær standi yfir til miðs árs 2018.Á síðari hluta ársins 2016 má gera ráð fyrir um 100 starfsmönnum á virkjunarsvæðinu. Allt árið 2017 og fyrri hluta árs 2018 er gert ráð fyrir allt að 150 starfsmönnum á svæðinu.Áætlaður heildarkostnaður er 13-15 milljarðar íslenskra króna (vélbúnaður er 40% af heildarkostnaði).Ráðgert er að gangsetja stækkaða virkjun í apríl 2018.Verkís sér um hönnun virkjunarinnar og er sú vinna þegar hafin.Óskað verður eftir tilboðum í vél- og rafbúnað vegna stækkunarinnar á næstu dögum. Efnt var til forvals meðal hugsanlegra bjóðenda og þeim bjóðendum sem uppfylltu skilyrði forvalsins verður gefinn kostur á þátttöku í útboðinu. Gert er ráð fyrir að tilboð verði opnuð í byrjun desember og að gengið verði til samninga í byrjun árs 2016.Byggingarvinna tengd stækkuninni verður boðin út í nóvember.Umhverfisáhrif talin lítilLandsvirkjun tilkynnti Skipulagsstofnun um fyrirhugaðar framkvæmdir við stækkun Búrfellsvirkjunar í maí 2013.Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að stækkun virkjunarinnar um allt að 140 MW sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.Þar sem um stækkun virkjunar er að ræða, sem ekki skal háð mati á umhverfisáhrifum, fellur framkvæmdin ekki undir verndar- og orkunýtingaráætlun – rammaáætlun.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Sjá meira