Menning

Allt það helsta í ljósmyndun

Magnús Guðmundsson skrifar
Ljósmynd /Einar Guðmann
Ljósmynd /Einar Guðmann
Dagana 23.-24. október 2015 standa Ljósmyndarafélag Íslands og Blaðaljósmyndarafélag Íslands saman að einni stærstu ljósmyndaráðstefnu sem haldin hefur verið hérlendis.

Ráðstefnan er ætluð öllu atvinnu- og áhugafólki í ljósmyndun. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli Reykjavík í þremur sölum og meðal staðfestra fyrirlesara eru: Mads Nissen, David Noton, Janette Beckman, Gianluca Colla, Páll Stefánsson, Heiðdís og Styrmir Kári, David Barreiro, Ragnar Th. Sigurðsson, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, Jóna Þorvaldsdóttir, Inga Sólveig og Hung Tang.

Ráðstefnan hefst á föstudagskvöldi með opnunarfyrirlestri hins margverðlaunaða Mads Nissen og að honum loknum býður Canon til veislu. Á laugardeginum standa ráðstefnugestum til boða 15 mismunandi fyrirlestrar sem haldnir verða í þremur mismunandi sölum og fjalla um allt frá Daguerre-týpum til nýjustu framfara í stafrænum myndflögum og ætti allt áhugafólk að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Vörusýning verður haldin samhliða sýningunni þar sem fyrirtækjum gefst einstakt tækifæri til að kynna sínar vörur og þjónustu fyrir stórum hópi atvinnu- og áhugaljósmyndara. Markmiðið er að hægt verði að kynna sér allt það helsta hvort sem er í búnaði, prentþjónustu eða annarri þjónustu fyrir ljósmyndara. Við viljum búa til vettvang fyrir þá sem þjónusta ljósmyndara til að koma saman og sýna sig og sína þjónustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.