Erlent

Hlébarði festi hausinn í potti - Myndband

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hlébarðinn vissi ekki alveg hvað hann ætti að gera af sér með hausinn fastan í potti.
Hlébarðinn vissi ekki alveg hvað hann ætti að gera af sér með hausinn fastan í potti. Skjáskot/YouTube
Karlkyns hlébarði lenti í miklum hremmingum er hann festi haus sinn í járnpotti í n-Indlandi eins og sjá má á myndbandinu hér fyrir neðan.

Hlébarðinn var að leita sér að vatni og stakk haus sínu ofan í pottinn í því skyni. Alls var potturinn fastur á hausi hlébarðarins í fimm tíma. Ráfaði hann ráðvilltur um þorpið þangað til að starfsmenn dýraverndar svæðisins gátu gefið honum róandi og sagað pottinn af hausi hlébarðans. Að sögn varð honum ekki meint af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×