Guardiola: Við töpuðum ekki út af Manuel Neuer Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. október 2015 07:30
Arsenal kom sér aftur í baráttuna í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar liðið vann frækinn sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern München, 2-0, á Emirates-vellinum í Lundúnum. Þetta var fyrsta tap Bayern á leiktíðinni, en liðið varð um helgina fyrsta liðið til að vinna níu fyrstu leikina í þýsku 1. deildinni og þá var liðið búið að vinna tvo fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni. Arsenal varðist vel í gærkvöldi og tók forystuna á 77. mínútu þegar varamaðurinn Oliver Giroud kom boltanum í netið eftir aukaspyrnu utan af velli. Manuel Neuer, markvörður Bayern, sem átti mögulega markvörslu ársins í fyrri hálfleik, gerði sig þá sekan um stór mistök. Markvarslan magnaða hjá Neuer: Þessi magnaði markvörður, sem af flestum er talinn sá besti í heimi, fór í skógarhlaup og hitti ekki boltann sem varð til þess að Giroud gat skorað í autt netið. Markið má sjá í spilaranum hér að ofan. Pep Guardiola, þjálfari Bayern, kom sínum manni til varnar á blaðamannafundi eftir leikinn, en honum datt ekki í hug að kenna Neuer um tapið. „Aldrei í lífinu hef ég gagnrýnt leikmann fyrir að taka ávarðarnir hvort sem þær eru réttar eða rangar. Við töpuðum ekki út af Manuel Neuer. Þetta er fótbolti og hann tók ákvörðun í þessu atviki. Þannig er það,“ sagði Pep Guardiola.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Sjá meira