Menning

Spila á flautu og píanó, syngja, hrópa og kalla

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Emilía Rós og Ástríður Alda hafa leikið saman síðustu ár og gáfu meðal annars út geisladiskinn Portrait 2012 sem hlaut þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Mynd/úr einkasafni
Emilía Rós og Ástríður Alda hafa leikið saman síðustu ár og gáfu meðal annars út geisladiskinn Portrait 2012 sem hlaut þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Mynd/úr einkasafni
„Það er vel þekkt tækni að syngja í flautuna um leið og maður spilar og Ásta syngur líka af og til við píanóið,“ segir Emilía Rós Sigurðardóttir flautuleikari glaðlega um tónleikana Röddin, sem hún og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari halda í Hafnarborg í Hafnarfirði á sunnudaginn klukkan 20.

Á dagskránni eru verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Beat Furrers og Kaiju Saariaho og svo frumflytja þær stöllur nýtt verk eftir tónskáldið og flautuleikarann Kolbein Bjarnason sem hann samdi sérstaklega af þessu tilefni.

Verkin eiga það sameiginlegt að styðjast við brot úr ljóðum ólíkra skálda, svo sem Plath, Eliots, Prousts og Thors Vilhjálmssonar.

„Það er talsverður texti í verkinu hans Atla Heimis sem við hrópum og köllum – og reyndar líka í verkinu hans Kolbeins, því hann varð fyrir áhrifum af verkinu hans Atla Heimis þegar það var frumflutt 1975 eða 6,“ segir Emilía Rós.

„Já, ef þú vilt vita þá kemur gjallarhorn líka við sögu!“

Tónleikarnir tilheyra tónleikaröðinni Hljóðön. Hún er tileinkuð tónlist frá 20. og 21. öldinni þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.