Maurizio Arrivabene, liðsstjóri Ferrari segist búast við því að lið sitt verði betra en Mercedes liðið á næsta ári.
Sebastian Vettel, annar ökumanna Ferrari liðsins sagði eftir Brasilíska kappaksturinn að liðið hefði aldrei verið nær Mercedes í hraða. Ekki síðan Mercedes hóf drottnun sína í við upphaf árs 2014. Vettel varð þriðji á eftir ökumönnum Mercedes.
Aðspurður hvort Ferrari gæti verið enn nær Mercedes á næsta ári svaraði Arrivabene: „Ef þú vilt fá að heyra væntingar mínar eru þær ekk að verða nær Mercedes heldur á undan þeim. Ég segi það af auðmýkt að við erum nálægt núna, við verðum að vera á undan á næsta ári.“
Ferrari vann enga keppni árið 2014 en hefur unnið þrjár í ár og enn er ein eftir.
Liðin geta notað 25 uppfærsluskammta í vetur, það er mikið svigrum til breytinga og bætinga fyrir 2016. Arrivabene ítrekaði að allur bíllinn verði endurskoðaður fyrir næsta ár.
„Við munum bæta hvern einasta part bílsins, vélin var stærsta skrefið fyrir þetta ár. Fyrir næsta ár verða allir aðrir hlutar bílsins skoðaðir,“ sagði Arrivabene.
Arrivabene: Ferrari verður betra en Mercedes

Tengdar fréttir

Hamilton: Ekki hægt að taka fram úr hérna
Nico Rosberg tryggði sér í dag annað sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna með því að vinna í Brasilíu. Hver sagði hvað eftir keppnina?

Nico Rosberg vann í Brasilíu
Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í brasilíska kappakstrinum. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Bílskúrinn: Blönduð keppni í Brasilíu
Keppnin í Brasilíu um síðustu helgi var með þeim rólegri, einungis einn ökumaður komst ekki í endamark, Carlos Sainz á Toro Rosso kláraði ekki fyrsta hringinn. Margt athyglisvert kom þó fram um helgina uppgjör þess helsta er í Bílskúrnum, hér á Vísi.

Felipe Massa dæmdur úr leik á heimavelli
Felipe Massa hefur verið dæmdur úr brasilíska kappakstrinum sem fram fór í dag. Dekk á bíl heimamannsins var heitara en heimilt er á ráslínu.