Þar héldu þeir um 140 gíslum og 30 starfsmönnum hótelsins á sjöndu hæð. Fyrir stundu réðust bandarískar sérsveitir aðstoðuðu malískar öryggissveitir þegar ráðist var gegn gíslatökumönnunum fyrir skömmu. Aðgerðum er lokið og yfirvöld í Malí segja að tveir árásarmannana hafi fallið.
Tölur eru á reiki um mannfall í gíslatökunni. AFP greinir frá því að átján hafi látist en friðargæsluliði SÞ hefur látið hafa eftir sér að 27 lík hafi fundist í hótelinu en enn er verið að leita í hótelinu.
Al-Mourabitoun, hópur tengdur hryðjuverkasamtökunum Al-Qaida hefur lýst yfir ábyrgð. Hópurinn er tveggja ára gamall. Áður hefur hann lýst yfir ábyrgð á árás sem átti sér stað í Bamako í mars þar sem fimm létust og auk þess sem hópurinn réðst á hótel í ágúst þar sem 17 létust.
Correction: UN peace keeper has counted 27 bodies at the Radisson Blu Hotel in Bamako. @abcnews
— Martin Cuddihy (@MartinCuddihy) November 20, 2015
- Talsmaður Carlson Rezidor Hotel Group, eiganda Radisson-hótelanna, segir að 140 gestir og þrjátíu starfsmenn hótelsins hafi verið teknir í gíslingu.
- Búið er að ráðast til atlögu gegn gíslatökumönnunum.
- Engir gíslar eru eftir á hótelinu.
- Óljóst er hvað árásarmenn eru margir.
- 27 lík hafa fundist samkvæmt friðargæsluliðum SÞ
- Einhverjum gíslum sem gátu vitnað í Kóraninn hefur verið sleppt.
- Gíslatökumennirnir héldu sig á sjöundu hæð hótelbyggingarinnar.
- Hótelið er vinsælt á meðal erlendra ríkisborgara sem starfa í Malí. Sendinefnd Sameinuðu þjóðanna dvelur á hótelinu.
- BFMTV greinir frá því að árásarmennirnir hafi komið á bíl á sendiráðsnúmeri.
- Al-Mourabitoun, herskár öfgahópur tengur Al-Qaida er sagður bera ábyrgð á árásinni.
Talsmaður öryggismálaráðuneytis Malí segir að þrír árásarmannanna hafi fallið í aðgerðum lögreglu. Malíski miðillinn Abamako greinir frá þessu. Ekki liggur fyrir hvað árásarmennirnir eru margir. Þar segir jafnframt að árásarmennirnir sæki nú upp á þak byggingarinnar.
14:15 Mikil skothríð inni á hótelinu
Guardian greinir frá því að mikið hafi verið skotið úr byssum inni á hótelinu síðustu mínúturnar. Herlið sækir nú að gíslatökumönnunum sem hafast við á sjöundu hæð hússins. Talsmaður hótelsins segir að 138 manns séu enn inni á hótelinu.
13:58 Bandarískar sérsveitir til aðstoðar
CNN greinir frá því að bandarískar sérsveitir aðstoði malískar öryggissveitir í gíslatökunni í Bamako.
U.S. special operations forces assisting in Mali hotel hostage situation. https://t.co/ABfsTe9M01
— CNN Breaking News (@cnnbrk) November 20, 2015
Þrátt fyrir fréttir um að áttatíu af 170 gíslum hafi verið sleppt, telja eigendur hótelsins að 138 manns séu ekki í byggingunni – 125 gestir og þrettán starfsmenn.
Un nouvel otage libéré à l'hôtel #Radisson de Bamako, au #Mali. En tout, des 10zaines de personnes ont été exfiltrés pic.twitter.com/V1axWdNf1f
— MIKADO FM (@mikadofm) November 20, 2015
Maður sem slapp út úr Radisson Blu hótelinu segir að margir hryðjuverkamannanna hafi rætt saman á ensku.
12.34 Starfsfólk Air France slapp
Allir tólf starfsmenn flugfélagsins Air France sem dvöldu á hótelinu hafa sloppið og hefur verið komið í öuggt skjól. Air France greinir frá þessu á Twitter-síðu sinni.
#AirFrance confirme que ses 12 membres d'équipage à #Bamako ont été exfiltrés et sont en sécurité. pic.twitter.com/wh8LHA7ROi
— Air France Newsroom (@AFnewsroom) November 20, 2015
Sérsveit á vegum franska hersins er á leið frá París til Bamako. Sveitin tilheyrir þeirri sömu og var kölluð út í kjölfar árásanna í París fyrir viku.
❗️ #Bamako Flash info : départ de personnels du #GIGN pour le #Mali pic.twitter.com/vwOZipXO28
— GendarmerieNationale (@Gendarmerie) November 20, 2015
Malíska ríkissjónvarpið segir að áttatíu af 170 gíslum hafi verið sleppt. Sjónarvottar segja öryggissveitir hafa haldið inn á hótelið.
11:51 Reuters: Öryggissveitir halda inn á hótelið
Reuters greinir frá því að malískar öryggissveitir hafi haldið inn á hótelið.
11:45 Tuttugu Indverjar á hótelinu
Talsmaður indverska utanríkisráðuneytisins segir að tuttugu Indverjar hafi verið á hótelinu.
11:38 Al Jazeera: Segir Ansar al-Din bera ábyrgð á árásinni
Katarska sjónvarpsstöðin Al Jazeera TV segir að hópurinn sem ábyrgð ber á árásinni sé Ansar al-Din, herskár öfgahópur sem vill koma á sjaría-lögum í Malí.
11:25 Gíneska söngvaranum Bambino sleppt
BBC greinir frá því að gíneski söngvarinn Bambino á meðal gesta hótelsins sem hafi sloppið frá hryðjuverkamönnunum.
11:21 Starfsmenn Turkish Airlines náðu að flýja
Talsmaður tyrkneskra stjórnvalda segir að þrír starfsmenn Turkish Airlines hafi tekist að flýja frá hótelinu. Reuters segir frá.
11:45 Tuttugu Indverjar á hótelinu
Talsmaður indverska utanríkisráðuneytisins segir að tuttugu Indverjar hafi verið á hótelinu.
Attackers shouting "Allahu Akbar" opened fire outside the hotel before storming it https://t.co/glmKnmlJlx pic.twitter.com/ScKY18lYve
— AJE News (@AJENews) November 20, 2015
Fjöldi erlendra gesta dvelja á Radisson Blu hótelinu – þeirra á meðal Tyrkir, Belgar, Bandaríkjamenn og Kínverjar. Að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna dvelur sendinefnd á vegum SÞ á hótelinu.
11:14 Fóru herbergi úr herbergi
Árásarmennirnir sem nú eru inni á Radisson Blu hótelinu fóru herbergi úr herbergi á öllum hæðum hússins og söfnuðu saman gíslum. Þetta hefur Reuters eftir heimildarmanni. Gíslatökumennirnir eru nú á sjöundu hæð hótelbyggingarinnar.
11:08 Ríkasti maður Afríku ekki á hótelinu
Nígeríumaðurinn Aliko Dangote, ríkasti maður Afríku, hefur hafnað fréttum sem hafa birst í einhverjum fjölmiðlum um að hann sé einn gíslanna. Hann segist hins vegar hafa verið í Malí í gær.
Rumour about me being held hostage is false. I was in Mali yesterday.Thank you for your concern. My prayers with those involved.
— Aliko Dangote (@AlikoDangote) November 20, 2015
Forseti Malí, Ibrahim Boubacar Keita, hefur ákveðið að stytta opinbera heimsókn sína til Tsjad vegna árásarinnar á Radisson Blu hótelið í Bamako.
Le Pdt #IBK qui se trouve à N'Djaména au Tchad pour le sommet du G5 Sahel écourte son séjour pour regagner Bamako dans les prochaines heures
— Presidence Mali (@PresidenceMali) November 20, 2015
Talsmaður malíska hersins segir að um tuttugu gíslum hafi verið sleppt.
10:55 Misvísandi fréttir um áhlaup öryggissveita
Guardian segir misvísandi upplýsingar vera um hvort áhlaup hafi verið gert á hótelið. AFP hefur eftir ráðherra að áhlaup hafi verið gert, þó að Reuters segir að öryggissveitir séu einungis „á vettvangi“. Frönsk yfirvöld hafa veitt malíska hernum aðstoð.
10:54 Kínverskur gísl birtir myndband
Kínverska fréttastofan Xinhua hefur birt myndband sem sagt er að sé tekið upp af kínverskum gísl á hótelinu.
Cell phone video filmed by Chinese tourist taken hostage in Bamako, #Mali. The Chinese national is among 170 trapped
https://t.co/0QSaS5wMSs
— China Xinhua News (@XHNews) November 20, 2015
Tyrkneska flugfélagið Turkish Airlines hefur staðfest að sex starfsmenn flugfélagsins séu á meðal gesta á hótelinu.
10:43 Gera áhlaup á hótelið
Malískar öryggissveitir gera nú áhlaup á Radisson Blu hótelið. AFP hefur þetta eftir ráðherra í ríkisstjórn Malí.
#BREAKING: Mali security forces storming besieged Bamako hotel: minister
— Agence France-Presse (@AFP) November 20, 2015
AFP hefur greint frá því að tíu gíslum hið minnsta hafi verið sleppt. Áður hefur verið greint frá því að einhverjum gíslum sem gátu vitnað í Kóraninn hafi verið sleppt.
10:30 Þrír látnir
Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna greinir frá því að þrír séu látnir - tveir malískir ríkisborgari og einn Frakki. CNN segir frá.
2 Malian citizens and a French citizen have died in the Mali hotel attack, U.N. official says. https://t.co/ABfsTe9M01
— CNN Breaking News (@cnnbrk) November 20, 2015
Reuters greinir frá því að nokkrum gíslum hefur verið sleppt. Margir þeirra eiga fyrst að hafa verið beðnir um að vitna í Kóraninn. AFP greinir frá því að tvær konur hafi verið færðar út úr hótelinu í fylgd malískra hermanna.
10:08 Hófst klukkan átta
Árásarmennirnir réðust inn á hótelið um klukkan átta að staðartíma.
10:07 Kínverjar á meðal gíslanna
Kínverski miðillinn Xinhua greinir frá því að fjöldi kínverskra ferðamanna séu á hótelinu og á meðal gíslanna.
10:05 Ekki vitað hverjir árásarmennirnir eru
Í frétt Reuters segir að ekki sé vitað hverjir árásarmennirnir eru. Þó er vitað að þeir hafi verið allt að tíu talsins og rutt sér leið inn á hótelið, skotið úr byssum og hrópað „Allahu Akbar“ eða „Guð er mikill“.
10:03 Innan um ráðuneyti og sendiráð
Radisson Blu hótelið er í hverfi vestan miðborgar Bamako. Fjöldi ráðuneyta og erlendra ráðuneyta eru nærri hótelinu.
10:01 Tveir öryggisverðir særðir
Að minnsta kosti tveir öryggisverðir hafa særst í árásinni.
9:45: Í vesturhluta borgarinnar
Radison Blu hótelið er í vesturhluta höfuðborgarinnar Bamako.
De Peches du Mali greinir frá því að árásarmennirnir séu tíu talsins.
9:40 Gömul frönsk nýlenda
Malí er gömul frönsk nýlenda og hafa Frakkar haft hernaðarleg afskipti af landinu, síðast í janúar 2013 þegar uppreisnarmenn tengdir al-Qaeda náðu yfirráðum í norðurhluta landsins. Íslamskir öfgamenn drápu þrettán manns, fimm starfsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna þeirra á meðal, í árás á hótel í bænum Sevare í ágúst síðastliðinn.
SECURITY MESSSAGE (1/4) The Embassy is aware of an ongoing active shooter operation at the Radisson Hotel.
— U.S. Embassy Bamako (@USEmbassyMali) November 20, 2015
SECURITY MESSAGE (2/4) The U.S. Embassy staff has been asked to shelter in place. All U.S. citizens should shelter in place.
— U.S. Embassy Bamako (@USEmbassyMali) November 20, 2015