Ætla að fjalla um störfin sem ég er stoltastur af Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. desember 2015 10:30 Trausti Valsson skipulagsfræðingur.
Þetta verður lokaerindi mitt við skólann. Ég er að verða sjötugur og ætla að kveðja Umhverfis-og verkfræðideildina um áramótin samkvæmt landslögum,“ segir Trausti Valsson skipulagsfræðingur um fyrirlestur sem hann heldur í dag í stofu 132 í Öskju. Á eftir setjast í panel þau Birgir Jónsson dósent, Halldór Eyjólfsson, fyrrv. MS-stúdent Trausta, og Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands. Auk þess verða leyfðar spurningar úr sal. Fundarstjóri er Guðmundur Freyr Úlfarsson deildarstjóri. Trausti kveðst ætla að fjalla um afmörkuð atriði úr sinni nýju bók sem nefnist Mótun framtíðar, einkum störfin sem hann sé stoltastur af. „Bókin er starfsævisaga, samantekt á því sem ég hef verið að fást við síðustu tuttugu og sjö ár, þó hún byrji á að lýsa fólkinu sem að mér stendur, uppvextinum og skólaárunum,“ segir hann.Trausti var akkúrat með réttu menntunina, doktorspróf í umhverfisskipulagi, þegar hann kom heim frá námi í Bandaríkjunum 1987 og fékk því fljótlega starf við Umhverfis-og skipulagsdeild HÍ, fyrst sem dósent en fljótlega sem prófessor. „Verkfræðingarnir við deildina höfðu séð í blaðaviðtali að ég hefði þá þekkingu sem felst í því að rannsaka náttúruna til að geta aðlagað vegi, brýr, flugvelli, hafnir og byggð að henni. Það heitir á ensku Design with nature og var dálítið nýtt þá. Áður var yfirleitt byrjað á að fá jarðýtur til að slétta úr svæðum en lítil tilfinning var fyrir þeim verðmætum sem felast í landslaginu og að lagni þyrfti til að láta mannvirki falla að umhverfinu.“ Eftir inngönguna í EES byrjuðu Íslendingar að taka við tilskipununum frá Brussel. Ein þeirra var um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Það er grundvallarfag í dag og Trausti aftur í vissu lykilhlutverki innan sviðsins. Sér hann fyrir sér að bókin hans verði kannski kennslubók við deildina? „Ég veit það ekki en mér finnst leiðinlegt að leggjast alveg í leti svo ég bjó til nýtt námskeið fyrir Endurmenntunarstofnun HÍ sem heitir Þróun hugmynda um skipulag og hönnun og byrjar eftir áramótin. Þessi nýja bók nýtist sem kennslubók þar.“Fundurinn í Öskju stendur frá klukkan 15 til 16.30 og er öllum opinn.
Menning Mest lesið Hefur gefið út tvö hundruð lög á fimm mánuðum Lífið Heitustu hinsegin pör landsins Lífið Byrjaði í smábrotum en vatt svo upp á sig Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Dóttir Snæfríðar og Högna komin með nafn Lífið Ekki búið spil Lífið Dró Antonio grunlausan með sér í Gamla bíó Lífið Harðfisk-, laxa- og beikonís á Ísdeginum í Hveragerði Lífið Sjáðu myndirnar frá Ungfrú Ísland Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fleiri fréttir Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Allt á fullri ferð á Húsavík um helgina Guðrún Jóhanna nýr skólastjóri Söngskólans Umræða um feðraveldi og karlrembu skekur djassbransann Útlit fyrir bíólausa Akureyri Komið að endalokum eftir 25 ár Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar Sjá meira