Menning

Konan hans Almars: „Ég er ógeðslega stolt af honum“

Birgir Olgeirsson skrifar
Salka Valsdóttir faðmar hér manninn sinn Almar Atlason eftir að hann kom úr kassanum.
Salka Valsdóttir faðmar hér manninn sinn Almar Atlason eftir að hann kom úr kassanum. Vísir/GVA
„Ég er ógeðslega stolt af honum,“ segir Salka Valsdóttir um eiginmann sinn Almar Atlason sem lauk nú í morgun vikudvöl sinni í glerkassanum. Salka sagði yndislegt að fá Almar til sín og er búin að knúsa hann í bak og fyrir.

Salka og Almar voru á leið í sund þegar Vísir náði tali af þeim.Vísir/Facebook/Youtube
„Ég helda að honum líði ágætlega núna, kannski í smá spennufalli,“ sagði Salka sem var á leið í sund með Almari þegar Vísir náði tali af henni. „Hann er algjör hetja að halda þetta út.“

Hún sagði það vera mikinn létti að Almar væri kominn út, núna gæti hún loksins farið að einbeita sér af próflestrinum. „Það hefur þurft að vakta hann og þetta hefur verið mjög orkufrekt að hafa hann þarna, miklu meira en hefði ég haft hann hjá mér,“ segir Salka.

Sagt var frá því í síðustu viku að Almari hefði verið hótað og var því tekin sú ákvörðun að vakta hann yfir helgina og alveg fram að lokametrunum á þessum gjörningi sem lauk um klukkan níu í morgun.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×