Tvennir bræður tilnefndir Jakob Bjarnar skrifar 1. desember 2015 17:30 Einstaklega spenanndi verður að sjá hver þessara fínu og virtu höfunda hreppa verðlaunin en þau fá öll gullmiða á bækur sínar og munar um minna í jólabókaflóði. vísir/stefán
Nú rétt í þessu var verið að tilkynna um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2015. Þetta var við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Svo einstaklega skemmtilega vill til að tvennir bræðrum hljóta nú tilnefningu: Hallgrímur og Gunnar Helgasynir í flokki fagurbókmennta og barna og ungmennabóka sem og þeir Hermann og Jón Hallur Stefánssynir, Hermann í flokki fagurbókmennta en Jón Hallur er tilnefndur til þýðingarverðlauna. Auk tilnefninganna voru kynntar fimm þýðingar sem tilnefndar eru til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Formenn dómnefndanna þriggja munu velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki ásamt forsetaskipuðum formanni lokadómnefndar. Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 verða svo afhent um mánaðarmótin janúar-febrúar á komandi ári, af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvern verðlaunahafa.Bækur tilnefndar í flokki fagurbókmennta Auður Jónsdóttir Stóri skjálfti Útgefandi: Mál og menning Einar Már Guðmundsson Hundadagar Útgefandi: Mál og menning Hallgrímur Helgason Sjóveikur í München Útgefandi: JPV útgáfa Hermann Stefánsson Leiðin út í heim Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur Jón Kalman Stefánsson Eitthvað á stærð við alheiminn Útgefandi: BjarturDómnefnd skipuðu: Erna Guðrún Árnadóttir formaður nefndar, Helga Ferdinandsdóttir og Knútur HafsteinssonHöfundar tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka, frá hægri: Þórdís Gísladóttir, Hildur Knútsdóttir, Gunnar Helgason, Gunnar Theodór Eggertsson og Arnar Már Arngrímsson.vísir/stefánBækur tilnefndar í flokki barna- og ungmennabóka Arnar Már Arngrímsson Sölvasaga unglings Útgefandi: Sögur útgáfa Gunnar Theodór Eggertsson Drauga-Dísa Útgefandi: Vaka Helgafell Gunnar Helgason Mamma klikk! Útgefandi: Mál og menning Hildur Knútsdóttir Vetrarfrí Útgefandi: JPV útgáfa Þórdís Gísladóttir Randalín, Mundi og afturgöngurnar Útgefandi: BjarturDómnefnd skipuðu: Hildigunnur Sverrisdóttir formaður nefndar, Árni Árnason og Sigurjón Kjartansson.Þetta eru höfundarnir sem tilnefndir eru í flokki fræðibóka; vígalegur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa lagt líf og sál í verk sín.vísir/stefánBækur tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis Dagný Kristjánsdóttir Bókabörn Útgefandi: Háskólaútgáfan Gunnar Þór Bjarnason Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914 – 1918 Útgefandi: Mál og menning Héðinn Unnsteinsson Vertu úlfur – wargus esto Útgefandi: JPV útgáfa Páll Baldvin Baldvinsson Stríðsárin 1938 – 1945 Útgefandi: JPV útgáfa Smári Geirsson Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915 Útgefandi: SögufélagDómnefnd skipuðu: Pétur Þorsteinn Óskarsson formaður nefndar, Aðalsteinn Ingólfsson og Hulda Proppévísir/stefánÍslensku þýðingaverðlauninBandalag þýðenda og túlka hefur frá árinu 2005 veitt verðlaun á alþjóðlegum degi bókarinnar, 23. apríl, fyrir íslenska þýðingu á erlendu skáldverki. Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Gljúfrasteini, en svo vill til að dagur bókarinnar er einnig fæðingardagur Halldórs Laxness. Íslensku þýðingaverðlaunin voru sett á fót til að vekja athygli á mikilvægi þýðinga fyrir íslenska menningu og þeim afbragðsverkum sem auðga íslenskar fagurbókmenntir á ári hverju fyrir tilstilli þýðenda. Upphaflega kusu félagsmenn Bandalags þýðenda og túlka um tilnefnd verk, en fljótlega var ákveðið að fela óháðri þriggja manna dómnefnd að tilnefna fimm verk og velja verðlaunahafann. Tilnefningar eru kynntar samhliða tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.Þýðingar tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Nýsnævi – safn ljóðaþýðinga eftir 15 höfunda Útgefandi: Dimma Ásdís R. Magnúsdóttir Rangan og réttan – þrjú ritgerðarsöfn eftir Albert Camus Útgefandi: Háskólaútgáfan Brynja Cortes Andrésdóttir Ef að nóttu ferðalangur eftir Italo Calvino Útgefandi: Ugla Jón Hallur Stefánsson Spámennirnir í Botnleysufirði eftir Kim Leine Útgefandi: Bókaútgáfan Sæmundur Silja Aðalsteinsdóttir Grimmsævintýri, Philip Pullman tók saman og endursagði Útgefandi: Mál og menningDómnefnd skipuðu: Árni Matthíasson formaður nefndar, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirsdóttir
Menning Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira