Innlent

100 einsömul flóttabörn í SOS Barnaþorp

Birgir Olgeirsson skrifar
Um er að ræða börn á aldr­in­um 7-13 ára, flest frá Sýrlandi, og komu þau öll ein síns liðs til Aust­ur­rík­is.
Um er að ræða börn á aldr­in­um 7-13 ára, flest frá Sýrlandi, og komu þau öll ein síns liðs til Aust­ur­rík­is. Vísir/SOSBarnaþorp
Tæplega 100 einsömul flótta­börn hafa eign­ast nýtt heim­ili í SOS Barnaþorp­um í Austurríki á síðustu fjórum mánuðum. Um er að ræða börn á aldr­in­um 7-13 ára, flest frá Sýrlandi, og komu þau öll ein síns liðs til Aust­ur­rík­is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SOS Barnaþorpum sem hafa einnig gefið ungu fólki á flótta, þ.e. ung­menn­um á aldr­in­um 17-21 ára, heim­ili á SOS ung­menna­heim­il­um í Aust­ur­ríki, sem og í öðrum Evrópulöndum. Öll fá þau viðeigandi aðstoð hjá sérfræðingum SOS, til að mynda áfalla­hjálp og sál­fræðiaðstoð. 

Yfir 800 þúsund manns hafa komið sjóleiðina til Evrópu á þessu ári og þar af hafa tæplega 700 þúsund manns komið til Grikklands. SOS Barnaþorp segja þörfina fyrir aðstoð aukast með hverjum deginum en ætlað er að um 5000 flóttamenn komi á hverjum degi til Evrópu næstu þrjá mánuðina.

SOS Barnaþorpin sinna neyðaraðstoð fyrir flóttafólk í tíu löndum. Áhersla er lögð á aðstoð við börn en staðreyndin er sú að stór hluti flóttafólksins eru börn, annars vegar börn sem koma með fjölskyldum sínum og hins vegar þau sem koma ein síns liðs. Flóttabörn sem koma ein síns liðs eru í mikilli hættu á að lenda í höndum ofbeldismanna sem stunda barnavændi, eiturlyfjasmygl og mansal og því er gríðarlega mikilvægt að aðstoða þau börn sem fyrst eftir komuna til Evrópu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×