Lífið

Vulnicura ein af plötum ársins í erlendum miðlum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Í heimi tónlistargagnrýnenda er Vulnicura ein af plötum ársins.
Í heimi tónlistargagnrýnenda er Vulnicura ein af plötum ársins. Mynd/Getty
Árið 2015 hefur sannarlega verið ár Bjarkar en hún hefur komið víða við. Umfjöllun hefur verið mikil og í fjölmiðlum á breiðum grundvelli. Í janúar á þessu ári kom út áttunda breiðskífa Bjarkar sem ber titilinn Vulnicura og hefur hún fengið mikla umfjöllum þetta árið. Eins og menn muna lak platan út í lok janúar en samhliða því var hún einnig gefin út stafrænt.

Vulnicura er gefin út af One Little Indian og hefur hún fengið frábæra dóma og skorar hátt á mörgum listum yfir plötur ársins hjá hinum ýmsu miðlum. Platan er talin í mörgum af helstu fjölmiðlum heimsins, sem fjalla um menningu, á meðal áhugaverðust listaverka á sviði tónlistarinnar árið 2015.

„Mér finnst þetta vera ein af bestu plötum Bjarkar frá upphafi, ákveðin fullkomnun birtist í tónlistarsköpun hennar á þessari plötu. Hún fer í hóp bestu platna ársins hjá mér. Annars á hver og ein plata sitt móment í núinu en út frá mörgu finnst mér þessi plata vera alveg stórkostleg,“ segir Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri Smekkleysu. Í heimi tónlistargagnrýnenda er Vulnicura ein af plötum ársins.

Björk Guðmundsdóttir
Þetta var þó ekki eina útgáfan hennar á árinu því einnig komu út plöturnar Vulnicura Strings, níu útgáfur af 12 tommu Vulnicura Remix og Vulnicura Live sem inniheldur upptökur af tónleikum á árinu. Vulnicura Live kom þó eingöngu út á LP í mjög takmörkuðu upplagi í nóvember og var aðeins seld í Rough Trade-búðunum, þegar þær verslanir höfðu tilkynnt að Vulnicura væri plata ársins. Hún kemur þó út á almennan markað í kringum Grammy-verðlaunahátíðina í febrúar, til að fagna tilnefningu Bjarkar. Platan hennar, Vulnicura, er tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í flokki alternative-platna en þetta er í fjórtánda sinn sem hún er tilnefnd til Grammy-verðlauna.

Fyrir utan plötuútgáfurnar og tónleikaferðir var sett upp sýning tileinkuð Björk í MoMa, nýlistasafninu í New York. Á sýningunni var blandað saman tónlist, myndefni, hljóðfærum og búningum Bjarkar. Þar var meðal annars að finna ýmis hljóðfæri sem Björk hefur unnið með, athyglisverða búninga, myndefni og upptökur af tónleikum. Sýningin, sem var opnuð í vor, stóð yfir í þrjá mánuði.

Björk kom fram á fjölda tónleika víða um heim á árinu en þurfti því miður að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum sínum síðastliðið sumar og haust.

Fréttablaðið tók saman niðurstöður nokkurra fjölmiðla erlendis sem settu plötuna á lista yfir plötur ársins. 

Í nokkrum bandarískum miðlum er Vulnicura í eftirfarandi sætum yfir plötur ársins:

2. sæti - Time Out New York

5. sæti - The New York Times

6. sæti – NPR

7. sæti - The Washington Post

9. sæti - The Denver Post

15. sæti – Pitchfork

16. sæti - Consequence of Sound

28. sæti – Spin Magazine

33. sæti - American Songwriter

42. sæti - Rolling Stone



Í nokkurm breskum miðlum er Vulnicura í eftirfarandi sætum yfir plötur ársins:

2. sæti - Crack Magazine

5. sæti – The Guardian

5. sæti – The Line Of Best Fit

5. sæti - Dazed

6. sæti – The Sun

11. sæti - Uncut

12. sæti – Elle

13. sæti – The Wire

25. sæti – NME


38. sæti – Noisey






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.